EN

Heitar nætur

Kaldir drykkir

Segðu já

JóhannaRebekka

Fyrirpartý 24. september

Brúðkaup 25. september 2027

Eftirpartý 26. september

Quinta da Conceição við Lissabon

Stóri dagurinn nálgast

Too Cool To Be CarelessPAWSA

Dagskrá helgarinnar

Þrír dagar sunnan Lissabon

Föstudagur — 24. september

Fyrirpartý

Við setjum helgina saman í Sesimbra, strandbænum sunnan við Lissabon þar sem við mælum með að gestir gisti yfir helgina. Við hittumst, skálum og komumst í gírinn fyrir brúðkaupið. Nákvæm staðsetning og tímasetning afhjúpaðar síðar.

Laugardagur — 25. september

Brúðkaupið

Brúðkaupið sjálft. Athöfn og alvöru veisla á Quinta da Conceição. Heitar nætur, ljúffengur matur, kaldir drykkir og dans fram á nótt. Nákvæm dagskrá afhjúpuð síðar.

Sunnudagur — 26. september

Eftirpartý

Mjúk lending eftir stóra kvöldið. Við snúum aftur á Quinta da Conceição til þess að kveðja helgina við laugina. Nákvæm dagskrá afhjúpuð síðar.

Staðurinn

Quinta da Conceição

Brúðkaupið fer fram á Quinta da Conceição, fallegu sveitasetri frá 1715 í Azeitão, við rætur Arrábida-fjalla um 40 mínútum sunnan við Lissabon. Korkeikaskógar, gamlir garðar, sundlaug og portúgalskt kvöldloft — nóg pláss til að dansa undir berum himni.

01

Flugið

Flogið er til Lissabon (Humberto Delgado flugvöllur). Beint flug frá Keflavík tekur um fjórar klukkustundir, og þaðan er um 40 mínútna akstur suður á staðinn.

02

Gisting

Um korteri frá brúðkaups-quintunni er strandbærinn Sesimbra þar sem við munum hittast á föstudagskvöldið, en þar er frábær hótel er að finna. Einnig er hægt að halda sig í Azeitão og vera enn nær quintunni.

Quinta da Conceição

Azeitão · 40 mín frá Lissabon · 15 mín frá Sesimbra

Opna á korti

Veislustjórarnir

Leifur Bjarki

Leifur Bjarki

Veislustjóri

Siggi Tomm

Siggi Tomm

Veislustjóri

Þessir tveir halda um taumana í veislunni. Ertu með atriði, ræðu eða uppákomu? Allt slíkt fer í gegnum þá — ekki segja okkur neitt!

Náðu í þá á

seifur@rebwald.com

Sagan okkar

Jóhanna & Rebekka

Eftir átján ár af ást og gleði er komið að því að fagna fyrir alvöru með ykkur. Tónlist, fallegt umhverfi, sól, ferskir kokteilar og kossar eru því að sjálfsögðu grundvallaratriði en brúðirnar hafa lagt áherslu á þessa þætti í gegnum árin eins og sjá má!

Gott að vita

Spurt og svarað

Hver er klæðaburðurinn?

Sparilegt og litríkt — hugsið portúgalskt síðsumarkvöld, ekki jarðarför. Nánari lýsing kemur þegar nær dregur.

Hvernig er veðrið í september?

Lissabon í lok september er yfirleitt 20–26°C á daginn og milt á kvöldin. Léttur jakki eða sjal fyrir kvöldið er sniðugt — og sólarvörn fyrir daginn.

Má taka börnin með?

Veislan er eingöngu fyrir fullorðna en fullur skilningur er fyrir ungabörnum sem eru háð foreldrum sínum.

Hvað með gjafir?

Að þið komið alla leið til Lissabon er stærsta gjöfin. Ef þið hafið einbeittan brotavilja verður brúðkaupsferðarreikningur gefinn upp síðar.

Ég er með atriði í veisluna!

Bestu fréttir í heimi! Sendu línu á veislustjórana á seifur@rebwald.com. Ekki segja okkur neitt.

RSVP

Segðu já

Láttu okkur vita hvort þú fagnar með okkur í Portúgal. Svar óskast sem fyrst — og ekki gleyma að merkja við alla dagana sem þú mætir.

Mætir þú?
Hvaða daga mætir þú?

Við tökum okkur bessaleyfi til þess að senda ykkur póst með frekari upplýsingum.